20.08.2007 13:26:22 / begga

Ásdís Vala

jæja við skírðum prinsessuna okkar í gær og hlaut hún það fallega nafn Ásdís Vala :haha: Ásdís var nú bara út í loftið en Vala var í höfuðið á mömmu. við skírðum hana í Munkaþverárkirkju fram í sveit auk þess fallegasta kirkja á landinu :) en veislan var svo upp í kaupvangi og var þessi dagur æðislegur og litla snúllan mjög ánægð með nafnið sitt :)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 11:21:49 / begga

Akureyri

jæja erum nú á Akureyri í rólegheitunum erum búin að vera hérna í viku ég og snúlla en Einar kemur á eftir :) ætlum að skíra snúlluna næstu helgi svo hún fær nú loksins nafn hlakka rosalega til helgarinnar ætlum svo bara að vera hérna á Ak næstu viku að taka því rólega og kannski skoða eitthvað í kring ef veðrið verður gott get nú ekki sagt að það sé gott núna kalt og vindur ekki alveg efst á óskalistanum

í þarnæstu viku förum við með snúlluna í ungbarnaskoðun hlakka svo til að sjá hvað hún er búin að stækka mikið því maður sér sko mun á henni á hverjum degi er alltaf að verða mannalegri og farinn að taka svo vel eftir öllu í kringum sig Aron gaf henni leikteppi í gær og henni fynnst það alveg æðislegt ekki amarlegt að vera litabarnið í fjölskyldunni svoleiðis dekrað við mann :haha::haha:  


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 21:32:43 / begga

Mamma

jæja prinsessan okkar ákvað loksins að koma í heiminn þann 9 júlí lét sko bíða eftir sér í 10 daga auk þess var ég orðinn annsi þreytt á því að bíða og vera með svona risa kúlu :S:D en hún er bara yndislegust og fallegust :D:D:D

annars er bara allt gott að frétta við snúlla erum bara heima á daginn þar sem Einar er farinn að vinna en hann verður bara að vinna í 4 vikur svo er hann farinn í 2 mánaðar frí :D  svo erum við að fara norður eftir 3 vikur það er að segja ég og snúlla ætlum með mogp á þriðjudeginum eftir versló svo kemur Einar á föstudeginum, við ætlum svo að skíra 19 ágúst ekki hægt að láta hana vera nafnlausa ;)

en jæja nóg í bili ætli ég verði nú ekki duglegri að skrifa á barnalandsíðunni okkar veit ekki alveg hvort ég nenni að vera með 2 síður :$  en ég sé til ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 08:52:52 / begga

Júní

jey það er kominn júní minn mánuður :haha: 4 vikur í settan dag í dag samkvæmt sónarnum en bara 3 samkvæmt mínum útreikningum :lol: get sko ekki beðið hlakka svo til verður líka gaman að geta komist í föt sem ég hef ekki komist í seinnustu mánuðui hehe ;) á samt öruglega eftir að sakna kúlunar minnar

fór til ljósu í gær og bumban bara búin að stækka síðan í seinnustu viku hvar endar þetta 8| allavegna þá var legbotnin orðinn 38 cm en hann var bara 36 fyrir rúmri viku en þá veit maður að krílið er bara að stækka

já fer svo suður á þriðjudaginn ætla að fara að gera eitthvað í að hafa tilbúið fyrir krílið :) svo er ég líka búin að vera hérna í 7 vikur núna sem er búin að vera æðislegur tími notalegt að vera hérna á Akureyri komum svo aftur í ágúst en þá ætlum við að skíra hérna fyrir norðan, svo ætla mogp og Andrea að koma suður eftir 3 vikur :haha:

annars er spáð alveg geggjuðu veðri hérna um helgina bara rólegheit í góðaveðrinu og slaka á þó svo ég þoli ekki hitann þá er þetta búið að vera ágætt seinnustu daga 8) bara borða nóg af ís ;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 15:52:17 / begga

í sól og sumari

jæja fór til ljósu í dag og ástandið var bara eins :) ánægð með það en sem sagt þá er blóðþrýstingurinn bara eins í kringum 90 í neðri mörkum sem er of hátt en það er samt í lagi svo lengi sem ég tek því bara rólega :haha: svo er ég með svolítið meiri bjúg heldur en í seinustu viku en það getur líka verið út af öllum þessum hita svo ég á ekkert að vera að liggja í sólbaði auk þess gæti ég það ekkert heldur þoli ekki hitan :$ fór samt og keypti mér kvart íþróttabuxur í dag sem passa þetta líka fínt mjög ánæð þegar ég finn eitthvað sem passar :haha:

já sá þetta hjá Aroni fynnst þetta annsi fyndið ætli að þetta verði svona eftir nokkur ár 8|8| hehe ;)

Árið 2010 í ríki gagnagrunnanna

SÍMASTÚLKA: Pizza plúúúús! Viðskiptavinur: Halló, ég ætla að panta pizzu hjá ykkur... SÍMASTÚLKA: Sjálfsagt, ég þarf að fá kennitöluna þína. VIÐSKIPTAVINUR: Kennitöluna, já hún er 180869-4859. SÍMASTÚLKA: Já, Jón Jónsson, heimilisfang Fálkagata 17, símanúmer 5809957. Þú vinnur í herbergi nr. 23 hjá Landsvirkjun og GSM númerið þitt er 879-4138. Úr hvaða síma hringirðu? VIÐSKIPTAVINUR: Ha, ég? Heimasímanum. Hvar náðirðu í allar þessar upplýsingar? SÍMASTÚLKA: Við erum tengd við netið. VIÐSKIPTAVINUR: (andvarpar) Já, ég ætla að fá tvær lúxuspizzur með kjötáleggi... SÍMASTÚLKA: Ég held þú ættir að sleppa því, Jón. VIÐSKIPTAVINUR: Hvað meinarðu? SÍMASTÚLKA: Jón, í sjúkraskýrslunni þinni stendur að þú hafir mjög háan blóðþrýsting og allof hátt kólesteról. Líftryggingafélagið þitt leyfir þér ekki að borða svona óhollan mat. VIÐSKIPTAVINUR: Hverju mælirðu þá með? SÍMASTÚLKA: Þú ættir að prófa fituskertu sojabaunapizzuna okkar með jógúrtsósunni. Ég er viss um að þér þykir hún góð. VIÐSKIPTAVINUR: Hvernig dettur þér í hug að ég mundi vilja eitthvað svoleiðis? SÍMASTÚLKA: Nú, þú tókst "Gæðauppskriftir með sojabaunum" á bókasafninu í síðustu viku. Þessvegna stakk ég upp á þessu. VIÐSKIPTAVINUR: Ókey, ókey. Sendu mér tvær í fjölskyldustærð. Hvað kostar þetta svo? SÍMASTÚLKA: Það ætti að nægja þér, konunni og börnunum fjórum. Kostnaðurinn er 4.589 krónur. VIÐSKIPTAVINUR: Ég ætlað að borga með kreditkortinu. Númerið er... SÍMASTÚLKA: (grípur fram í) Því miður, en þú verður að borga út í hönd. Þú ert kominn yfir á kortinu. VIÐSKIPTAVINUR: Ég hleyp þá bara í næsta hraðbanka með debetkortið og tek út pening áður en bílstjórinn ykkur kemur. SÍMASTÚLKA: Það gengur ekki heldur. Þú er búinn með yfirdráttinn á tékkareikningnum. VIÐSKIPTAVINUR: Jæja, jæja, sendu bara pizzurnar og ég hef peningana tilbúna. Hvað tekur það langan tíma? SÍMASTÚLKA: Við erum aðeins í seinni kantinum, gæti verið um 45 mínútur. Ef þér liggur á gætirðu sótt þær um leið og þú nærð í peningana, en það er auðvitað frekar erfitt að flytja pizzur á mótorhjóli... VIÐSKIPTAVINUR: Hverning veistu að ég er á mótorhjóli? SÍMASTÚLKA: Það stendur hérna að bíllinn hafi verið gerður upptækur vegna vangreiðslna á bílaláninu. En Hondan er fullgreidd svo ég gerði ráð fyrir að þú mundir koma á henni. VIÐSKIPTAVINUR: @#%/$@&?#! SÍMASTÚLKA: Gættu þín á orðalaginu, Jón. Þú er þegar búinn að fá á þig einn dóm fyrir að blóta í návist lögreglumanns, í júlí 2006. VIÐSKIPTAVINUR: (orðlaus) SÍMASTÚLKA: Var það eitthvað fleira? VIÐSKIPTAVINUR: Nei, ekkert. Jú annars, hvað með þessa tvo lítra af kók sem fylgja frítt með pizzunum frá ykkur? SÍMASTÚLKA: Því miður, Jón, en í smáa letrinu í auglýsingunni frá okkur stendur skýrum stöfum að við sendum ekki ókeypis gosdrykki til sykursjúkra.

 

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 21:01:41 / begga

31 vika :o)

úff hvað það er alltof heitt hérna á Akureyri maður er alveg að bráðna auk þess fór hitinn upp yfir 20 gráður í dag auk þess verður manni mikið heitar þegar maður er óléttur :$ en maður á ekki að  skammast yfir hitanum ótrúlegt að það skuli vera svona gott veður í lok apríl sá einmitt áðan í fréttunum hvernig veðrið var sama dag árið 1975 og þá var -8 stiga frosta á Akureyri og frekar vill maður hafa heitt en frost og snjó :)

annars gerist nú eitthvað lítið hérna hjá mér fer í mæðraskoðun einu sinni í viku og á einmitt að fara á morgunn hlakka til að sjá hvað kúlan hefur stækkað síðan í seinnustu viku finnst hún eitthvað svo stór í dag :| en það verður gaman að sjá á morgunn :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 15:26:44 / begga

Norðurlandið :o)

 

  Gleðilegt sumar

vá held ég sé að springa bumban er orðinn allt of stór hehe;) og hún á bara eftir að stækka þessa 2 mánuði sem ótrúlegt að það séu einungis 2 mánuðir 8|

fór norður á föstudaginn og ætla að vera hérna í c.a mánuð og taka því rólega :) mjög fínt auk þess er bara sumarveður hérna á Akureyri. pantaði mér bara tíma hjá ljósmóður hérna fyrir norðan og fór í gær og tók mömmu með mér fékk bara fína skoðun mjög ánægð með það sveita loftið hefur svo góð áhrif á mann hehe ;)

 já ætla að mynna á að kíkja á barnaland síðuna okkar og kvitta endilega í gestabókinna ætla að fara að vera dugleg að setja inn myndir og skrifa í vefdagbókina :haha:

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 17:10:42 / begga

30 vikur

OMG.... hvað manni getur leiðst þegar maður má ekkert gera nema hanga heima :cry: en þökk sé Heiðrúnu þá er ég föst yfir Sex in the city :)

en já er nú á leiðinni norður á föstudaginn og ætla að vera þar í maí á samt eftir að sakna Einars svo mikið :( en hann ætla nú að koma norður til mín

einhver sagði við mig að það væri svo yndislegt að vera ólétt en það á greinilega ekki við hjá mér get nú ekki annað sagt en að þetta sé svolítið ervitt þurfti einmitt að liggja inni á meðgöngudeild seinnustu helgi sem er nú ekki skemmtilegasti staðurinn til að vera á auk þess var ég mjög ánægð að komast þaðan út :haha: en mér líður nú mikið betur núna auk þess hef ég engla hérna heima til að hugsa um mig :haha: svo er ég líka farinn að telja niður í litla krílið og nú eru bara 10 vikur og 2 dagar í settan dag :)

Einar ástinn mín átti afmæli í gær orðinn 24 ára til hamingju með það ástinn mín elska þig mest :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 22:24:59 / begga

hætt í vinnunni :o(

jæja nú er ég víst bara hætt að vinna 8| ljósa og læknirinn sögðu við mig í dag að þeim fynndist bara að ég ætti að hætta fyrst blóðþrýstingurinn fer ekkert lækandi :( svo nú er ég ekki að fara að gera neitt á daginn nema hanga og liggja með tærnar upp í loftið :$ því þar sem blóðþrýstingurinn er of hár þá má ég ekki gera neitt af viti en hvað leggur maður ekki á sig fyrir litla krílið hugsa bara um það hvað þetta verður yndislegt þegar þetta verður búið :haha:

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 18:33:26 / begga

Akureyri

jæja ákvað að blogga smá þar sem ég er bara heima að hanga í tölvið :lol:

er á Akureyrinni í alveg geggjað miklum snjó fór að sofa í gær og þá var sama sem og autt, leit svo út þegar ég vaknaði í morgunn og vá það hafði snjóað svo mikið :( leist nú ekkert á þetta þar sem mér skilst að það sé þetta fína veður í Reykjavík en hver hefur nú ekki gaman að smá snjó

annars er tíminn hérna fyrir norðan búin að vera annsi fljótur að líða kom á þriðjudaginn og það er strax kominn helgi og Einar að koma á ettir hlakka svo til að hitta hann :haha:

já svo vorum við að kaupa okkur íbúð :haha::haha: ekki seinna væna þar sem það styttist svo í prinsessuna rúmur 3 og hálfur mánuður :haha::haha: en allavegna þá erum við að flytja í Hafnafjörðinn svo við verðum hafirðingar :lol:

komst að því í dag að ég ætti alveg bráðgáfaðan kött :$ kisa var ein heima og það hafði gleymst að opna gluggan svo hún kæmist út svo hún opnaði bara útidyrnar kann sko alveg að bjarga sér :lol: komum svo bara heim að opnu húsi :lol::lol:

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 09:44:33 / begga

laugardagur til lukku

halló halló

gat ekki sofið vaknaði kl 9 að deyja í mjóbakinu og framan á kúlunni :( er ekkert sérlega gaman að geta ekki sofið sérstaklega þegar maður verður að taka það alveg rólega þar sem ljósa bannaði mér að reyna nokkuð á mig um helgina :S  vaknaði nefninlega upp á miðvikudagsnóttina alveg að deyja úr verkjum allan hringinn gat ekki snúið mér eða neitt fannst bara best að standa fór til ljósu og hún heldur að þetta sé bara grindinn og legböndinn eitthvað að spila saman svo well ég þarf bara að taka því rólega um helgina og ekki vinna

annars er all gott að frétta á þessum bæ bumban stækkar og stækkar svo allir bolir sem ég á eru komnir upp á miðja bumbu ekki mjög fallegt svo ég fór og splæsti í 2 boli sem eru það síðir að þeir ættu að duga eitthvað vona ég :$prinsessan mín er líka mjög dugleg að sparka finn stundum þegar fóturinn kemur upp í lófan á mér ekkert smá fyndið meira segja Einar er búin að finna spörk

jæja kominn með nóg af að skrifa í bili  


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 19:25:00 / begga

20 vikna sónar

jæja fórum í sónar í dag og það var æðislegt :haha: fengum að vita kynið litla krílið er sko lítil prinsessa :haha: það var rosa gaman að sjá krílið og allt kom vel út og prinsessan bara spræk var reyndar alltaf að reyna að fela sig og setja hendina fyrir andlitið þvílíkt sæt svo nú er bara að bíða finnst samt svo langt í þetta :$ en þetta verður fljótt að líða :haha::haha:

annars er bara allt gott hérna meginn bara þreytt eftir vinnuna í dag þarf ekki mikið til en það er nú komið helgarfrí svo það verður bara slakað á um helgina er reyndar að fara út að borða með vinnunni hans Einars á morgunn en það verður bara gaman góður matur og svona :D sem er frábært þar sem ég er kominn með svo mikla list aftur og er ekkert smá ánægð með það litla daman búin að stríða mömmu sinni alveg nóg :haha:

                          :haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:
 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 15:49:43 / begga

kominn suður


vá ég er svo dugleg að blogga en málið er að maður hefur bara ekket að segja geri bara alveg afskaplega lítið vinn sama sem og ekki neitt 2-3 daga í viku og þess á milli er ég bara eitthvað að slæpast og slaka á sem ég á náttúrlega að vera að gera finn að ég er alltaf alveg búin á því í mjóbakinu og neðst í bumbunni eftir að vera búin að vinna í 8 tíma :S en það er víst út af grindinni ætla bara að fara að skella mér í sund var einmitt að pæla í meðgöngusundi sem er nú bara við hliðinna á vinnunni minni verð bara að redda mér sundbol fyrst þar sem sundfötinn mín eru orðinn allt of lítil á mig :$
í þar næstu viku er ég svo að fara á brjóstagjafanámskeið og á að taka Einar með mér hann hefur nú ábyggilega mjög gaman af því hehe ;):haha:
ættlum svo að fara að kíkja í kringum okkur með íbúð ekki seinna væna þar sem það eru bara rúmir 4 mánuðir í krílið :haha:



» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 13:05:06 / begga

hækkandi sól :)


allt gott að frétta hérna frá Akureyrinni :) allt á kafi í snjó og vá hvað það er búið að vera kalt fór upp í -17 í seinnustu viku alltof kalt :S en samt fallegt veður sólinn farinn að láta aðeins glitta í sig í smá stund :haha:
annars er bara allt gott héðan verð hérna í viku í viðbót þá verð ég búin að vera hérna í 3 vikur annsi notalegur janúar á svo að byrja að vinna í næstu viku en það verður eitthvað lítið þar sem ég má bara vinna 50% vinnu allavegna til að byrja með svo ég verð bara að taka því rólega kannski að byrja að versla eitthvað dót fyrir krílið meðan ég hef ekkert að gera :haha:
svo er alltaf að færast meira og meira fjör þarna inn í kúlunni sem fer líka ört stækkandi alltaf að finna meiri og meiri hreyfingar finn samt bara til hliðana þar sem fylgjann er víst framan á :( en það er allt í lagi fékk einmitt að fara í sónar upp á spítala í seinnustu viku ekkert smá gaman fékk alveg geggjaða mynd af krílnu að sjúga á sér puttann er einmitt búin að setja þær inn á barnalandsíðuna okkar endilega að kíkja www.barnaland.is/barn/53725 fer svo aftur í sónar 9 febrúar og þá fáum við að sjá kynið get ekki beðið :haha:
já endilega takið líka þátt í skoðunakönnuninni



» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 19:38:24 / begga

.....................................

já maður er nú en bara á Akureyri sem er alveg frábært geri reyndar ekkert þar sem þrekið hjá mér er nú ekki alveg í topp formi kvíð fyrir að fara að vinna :( en ég byrja bara rólega þarf að tala við lækninn á mánudaginn

annars hefur ekki mikið á daga mans drifið hérna fór upp á spítala á mánudaginn með mömmu eftir að ég talaði við lækninn þar sem ég hafði ekki haldið neinu niðri um helgina og var bara lögð inn með það sama 8| var drifinn inn á stofu og látinn fá þessi mjög svo fínu spítalaföt síðbrókinn var nú ekkert til að hrópa húrra yfir því þrátt fyrir að vera merkt fæðingadeildinni þá var samt tippabunga á þeim 8| skil nú ekki alveg hvers vegna það var á fæðingadeildinni :$ en þær voru nú ágætar samt hehe :haha:
 jæja svo kom læknirinn til að setja upp nál í hendina á mér byrjaði á að taka vinstri hendina mína og úpps haldið þið ekki að hún hafi stungið í geggnum æðinna :( ekki gott auk þess sitt ég uppi með stærðarinnar marblett á handabakinu en þetta gekk nú betur á hægri hendi svo var ég bara tengd við vökvapoka og svo tæki sem skamtaði hvað ég fengi mikið á klst.... ekki sérlega gaman að dröslast með þetta tæki hvert skipti sem ég fór fram úr rúminu hehe auk þess sagði mamma að þetta væri stundum kallað viðhaldið eða síamstvíburinn :lol: en allavegna þá lá ég þarna fram á þriðjudagskvöld með viðhaldið tengt við mig en þá losnaði ég við það auk þess búin að fá 4 og hálfan poka af vökva :)

fékk svo að fara heim á miðvikudaginn auk þess mjög gott að koma heim og geta sofið heila nótt án þess að þurfa að vakna upp við barnagrát allt í lagi að láta það bíða í nokkra mánuði :)
:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Minnigarsíða